Nemendur í 10. bekk munu bjóða upp á heitar vöfflur með sultu og rjóma, ásamt heitu súkkulaði.
Tvær vöfflustöðvar verða í gangi, önnur í aðalanddyrinu á Sólvöllum og hin í mötuneytinu á Sólvöllum.
Krakkarnir eru að safna fyrir vorferðinni sinni og verðskráin er eftirfarandi:
Vaffla með sultu og rjóma: 300 kr.
Heitt súkkulaði: 200 kr.
Styrkjum útskriftarhópinn okkar og njótum veitinganna um leið!