Vímuefnafræðslan VELDU fyrir foreldra

Fyrir foreldra/forráðamenn ungmenna sem hafa fengið vímuefnafræðsluna VELDU frá Heilsulausnum. Einnig mælum við með því að starfsfólk sem sinnir ungmennunum fylgist með.

Markmið: Fræða foreldra og starfsfólk um það sem ungmennin þeirra fengu fræðslu um. Hvetja foreldra til að taka samtalið um vímuefni, kenna þeim leiðir til að takast á við vímuefnanotkun barna sinna og þekkja einkennin. Einnig að kenna þeim leiðir til að styrkja sjálfsmynd barna sinna sem vernd gegn áhættuhegðun.

Fræðsluform: Rafræn fræðsla með glærum og fyrirlesara.

Fræðarar og höfundar: Hjúkrunarfræðingar semja allt efni og sinna allri fræðslu.

Fræðsluefni: Allt fræðsluefnið er byggt á gagnreyndum og nýlegum heimildum, ásamt reynslu úr starfi.

Tímalengd: Um 50 mínútur.

Aðgengi: Fræðslan verður aðgengileg frá klukkan 17:00 þriðjudaginn 20. maí til miðnættis föstudaginn 23. maí 2025. Hér er tengill á fyrirlesturinn: www.heilsulausnir.is/vallaskoli