Við upphaf skólaársins 2021-2022

Skrifstofa skólans opnaði 4. ágúst sl. eftir sumfrí og starfsdagar munu hefjast 16. ágúst skv. skóladagatali.

Undirbúningur skólaársins 2021-2022 hefur gengið ágætlega og skólastjórnendur horfa bjartsýnum augum á það skólaár sem senn fer í hönd. Hlökkum við til að sjá nemendur okkar aftur eftir sumarfrí.

Skólasetning verður í íþróttahúsi Vallaskóla þriðjudaginn 24. ágúst.

Ekki er gert ráð fyrir þátttöku foreldra/forráðamanna við skólasetningu.

Nemendur og forráðamenn í 1. bekk fá sérstaka viðtalsboðun eins og áður.

Kl. 09:00          2.-4. árgangur

Kl. 10:00          5.-6. árgangur

Kl. 11:00          7.-8. árgangur

Kl. 13:00          9.-10. árgangur