Photo by Christian SPULLER on Unsplash

Vegna veðurspár á morgun fimmtudag

Kæru foreldrar og forráðamenn nemenda við Vallaskóla.
Skólahald verður með eðlilegum hætti í Vallaskóla á morgun fimmtudag. Engu að síður verða breytingar á skólaakstri, þær hafa verið gefnar út frá GTS og eru þessar:
Vegna appelsínugulrar veðurviðvörunar í fyrramálið (fimmtudaginn 26. mars) fellur eftirfarandi akstur niður
·         Dreifbýlisakstur fyrir grunnskóla Árborgar um morguninn
·         Akstur fyrir Barnaskólann á Stokkeyri og Eyrarbakka
·         Strætóferðir Árborgarstrætó fram að hádegi, eftir það verður staðan tekin
·         Ferðaþjónusta Fatlaðra – Ekki verður farið út fyrir Selfoss
Við biðjum foreldra og forráðamenn að fylgjast með fréttum og mögulegum breytingum á fréttum og tilkynningum vegna veðurs og meta hvort þau sendi sín börn til skóla eður ei. Mælst er til þess að foreldrar og forráðamenn sendi börn sín ekki fótgangandi til skóla.
Skólastjórar grunnskóla Árborgar ásamt sviðsstjóra fjölskyldusviðs styðjast við verklagsreglur almannavarnanefndar höfufuðborgarsvæðisins þegar kemur að óveðri líkt því sem spáð er á morgun ALM-vedurbaeklingur-forsjaradilar-IS-011122.pdf