Veðurviðvörun

Komiði öll sæl.Appelsínugul viðvörun vegna veðurs á svæði Vallaskóla er í gildi frá kl. 12-18 í dag.Þar sem þetta er á heimferðatíma barna úr skólanum biðjum við ykkur foreldra/forráðamenn að tryggja að börn ykkar komist heim með öruggum hætti eftir að skóla lýkur.Áætlun skólabíls (Sandvíkurhreppur) mun eitthvað raskast og reiknað er með að heimferð verði flýtt. Nánari tímasetning er í skoðun og við munum senda upplýsingar um það á eftir.Áætlun Árborgarstrætó mun líklega raskast um og eftir hádegi og best er að fylgjast með því á heimasíðu Árborgar, www.arborg.is .Starfið í frístundamiðstöðinni Bifröst verður með eðlilegum hætti í dag en mælst er til að foreldrar/forráðamenn sæki börn sín þangað eftir að vistun lýkur.Farið varlega og góða helgi.