Vallaskóli í 2. sæti í Skjálfta!

Vallaskóli tók þátt í  hæfileikakeppninni Skjálftinn sem var haldið í þriðja skiptið Laugardaginn 11/11 í Þorlákshöfn.

Atriði Vallaskóla hreppti annað sætið en atriðið var áhrifamikið og heitir Eitt skref áfram . Það fjallar um kvenréttindabaráttu þar sem sögulegt samhengi var fléttað við upplifanir kvenkyns nemenda í Vallaskóla árið 2023 og . Í atriðinu voru alls 10 stúlkur af unglingastigi, þær heita: Agla, Andrea, Anna Bríet, Bryndís Embla, Eva, Hekla, Hildur, Inga Dís, Sóley og Valdís.

Við óskum þeim innilega til hamingju með frábæran árangur!

 

Á myndinni eru frá vinstri: Hildur, Inga Dís, Sóley, Anna Bríet, Andrea, Eva, Agla, Hekla, Valdís og Bryndís Embla –  Vallaskóli 2023 (HAU)
Vallaskóli 2023 (HAU)