Vallaskólasundpokar og flöskur

Nemendaráð Vallaskóla setur í sölu flöskur og sundpoka, þetta er liður í þeirra fjáröflun skólaárið 2023-2024. Endilega skoðið auglýsinguna sem fylgir.Flöskurnar eru 400 ml álflöskur sem verða merktar með Vallaskólalógóinu, hægt er að velja á milli þess að fá dökkbláa eða svarta. Flaskan kostar 2000 krónur.
Sundpokarnir verða einnig merktir með Vallaskólalógóinu og fáanlegir í dökkbláu og svörtu. Sundpokinn er á 2000 krónur.

Þeir sem hafa áhuga á að kaupa, vinsamlegst sendi póst á hildigunnurk@vallaskoli.is til að panta, þá fáið þið sendar nánari greiðsluupplýsingar.
SÍÐASTI PÖNTUNARDAGUR ER ÞRIÐJUDAGURINN 7. MAÍ