Síðustu dagana fyrir skólaslit er kennslan brotin upp hjá okkur. Í unglingadeild og 7. árgangi eru Vallaleikar haldnir og ná þeir yfir þrjá daga. Nemendur að leysa ýmsar þrautir og eru í leikjum. Fram undan er svo skotboltamót sem endar á því að sigurliðið keppir meistaralið kennara. Fimmtudaginn verður svo Valló got talent þar sem nemendur fá að láta ljós sitt skína. Afar góður andi og gleði ríkir.
Hægt er að sjá brot af því best hingað til á Fésbókarsíðu Vallaskóla.