Útskriftarferð 10. árgangs

Í síðustu viku fór 10. árgangur í útskriftarferð sem þau hafa safnað fyrir í allan vetur. Um var að ræða tveggja daga ferð og gist var í félagsheimili Hrunamanna á Flúðum. Ferðin heppnaðist í alla staði vel. Það sem krakkarnir höfðu fyrir stafni fyrir utan góða samveru var litbolti, hópeflisleikir, útrás í Adrealín garðinum og flúðasiglingar. Allir snéru heim kátir og glaðir.

Fleirri myndir er hægt að skoða hér.