Upplestrarkeppnin haldin hátíðlega í Vallaskóla þriðjudaginn 7. mars

Upplestrarhátíð Vallaskóla var haldin með glæsibrag sl. þriðjudag en þessi viðburður er alltaf skemmtilegur í okkar huga. Þetta er hátíð 7. bekkinga en undirbúningur hennar hófst í raun 16. nóvember á Degi íslenskrar tungu en síðan þá hafa nemendur verið að æfa sig markvisst í framsögn með kennurum sínum.

Í 7. árgangi í Vallaskóla eru 67 nemendur og fyrir lokakeppnina hafa þeir verið að æfa sig í framsögn með samnemendum sínum og kennurum. Í febrúar voru bekkjarkeppnir haldnar þar sem dómarar völdu níu fulltrúa fyrir skólakeppnina í Vallaskóla.

Fulltrúar Vallaskóla í Stóru upplestrarkeppninni frá því í fyrra voru sérstakir gestir á hátíðinni, þær Bryndís Embla Einarsdóttir og Jóhanna Naomí Ragnarsdóttir ásamt Hildi Kristínu Hermannsdóttur sem bar sigur úr bítum 2021. Þær kynntu rithöfund og ljóðskáld keppninnar ásamt því að lesa ljóð að eigin vali.

Þeir sem tóku þátt í lokakeppni Vallaskóla í ár voru Örn Hreinsson, Edda Ríkey Brynjarsdóttir, Emilía Fríður Tryggvadóttir, Ólöf Helga Orradóttir, Anna Metta Óskarsdóttir, Kjartan Ægir Grétarsson, Kamilla Mist Eiríksdóttir, Lilja Björg Ólafsdóttir og Bylgja Hrönn Ívarsdóttir.

Það var ekki auðvelt verk fyrir dómara að komast að niðurstöðu enda stóðu allir nemendur sig frábærlega. Dómarar keppninnar í þetta sinn voru Hafþór Agnar Unnarsson, Sigríður Margrét Gunnarsdóttir og Sveinn Ægir Birgisson. En niðurstaðan var sú að í sigurvegarar voru eftirtaldir:

Örn Hreinsson

Anna Metta Óskarsdóttir

Lilja Björg Ólafsdóttir

Kjartan Ægir Grétarsson

 

Nemendur hlutu bókagjafir frá Minningasjóði Ásgeirs Jónsteinssonar og rós sem viðurkenningu og þakkir fyrir þátttökuna. Í framhaldinu taka fulltrúar Vallaskóla þátt í Stóru upplestrarkeppninni ásamt fulltrúum frá Sunnulækjarskóla og Barnaskólanum Eyrarbakka og Stokkseyri sem haldin verður í Sunnulækjarskóla 23. mars næstkomandi.

 

Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)
Vallaskóli 2023 (GHS)