Dagana 14. og 15. janúar nk. mun hún Sigga Dögg kynfræðingur koma með kynfræðslu inn í skólann fyrir nemendur á unglingastigi í Vallaskóla. Sigga Dögg mun í framhaldi af þeirri fræðslu vera með fyrirlestur fyrir foreldra í sal skólans, Austurrýminu á Sólvöllum, þriðjudaginn 15. janúar kl. 18:00 – 19:30. Gengið er inn Engjavegsmegin.
Fræðslan fyrir foreldrana er í formi fyrirlestra og stuttra verklegra æfinga til að auka færni í samræðum um kynferðisleg málefni. Áhersla er lögð á upplýsingagjöf og virka hlustun. Leitast er við að svara spurningunum foreldra um hvernig megi nálgast börnin sem stundum vilja hvorki ræða málin né hlusta. Þá verður einnig farið í hvernig foreldrar geta aðskilið sína eigin kynlífsreynslu og gildi frá kynhegðun barnanna svo þau geti svarað spurningum þeirra og beint þeim á rétta aðila til frekari upplýsingaöflunar. Foreldrar verða æfðir í að ræða um kynlíf og kennt að setja mörk um hvað sé rætt og hvað ekki.
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri!
Bakgrunnur Siggu Daggar:
Sigríður Dögg Arnardóttir er fædd 10. desember árið 1982. Hún lauk BA prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands 2007 og MA prófi í kynfræði (sexology) við Curtin háskóla í Vestur Ástralíu 2011.
Sigga Dögg skrifar reglulega pistla fyrir ýmis tímarit og blöð, svarar spurningum lesenda í Fréttablaðinu, stýrir útvarpsþættinum Kjaftað um Kynlíf á K100.5 og er sérfræðingur sjónvarpsþáttanna Tveir + Sex. Hún hefur haldið kynfræðitengda fyrirlestra fyrir fleiri en 2600 einstaklinga á öllum aldri við góðan orðstír.