Tilnefning til íslensku menntaverðlaunanna

Tilnefingar til íslensku menntaverðlauna hafa verið birtar á vef Stjórnarráðsins. Það gleður okkur mjög að verkefnið Gullin í grendinni hefur verið tilnefnt til verðlauna í flokknum þróunarverkefni.

Gullin í grenndinni er samstarfsverkefni leikskólans Álfheima og Vallaskóla á Selfossi um nám úti í náttúrunni. Samstarfið hefur staðið yfir í fjölda ára  og hefur verið í stöðugri þróun og er nú fastur liður í starfi beggja skólanna.