Þemadagar voru á yngsta stigi á miðvikudag og fimmtudag síðastliðinn þar sem yfirþemað var heilbrigði og velferð.
Margskonar stöðvar voru í boði fyrir blandaða hópa úr öllum árgöngum yngsta stigs sem tengdust yfirþemanu á einhvern hátt. Vel heppnaðir dagar þar sem allir gátu fundið sér eitthvað við sitt hæfi.