Frábærlega vel heppnaðir þemadagar voru haldnir í Vallaskóla dagana 20. -22. mars.
Þemað í ár er fjölmenning en við skólann eru nemendur frá 27 þjóðlöndum.
Nemendur hafa unnið baki brotnu að kynningum sem voru opinberaðar á lokadegi þemadaganna og var opið hús þar sem fjölskyldur nemenda fengu tækifæri til að líta á afraksturinn.
Hverjum hóp var úthlutað landi til að fræðast um og kynna og gekk vinnan sem blandaðist á milli aldursstiga í hópunum vel.
Allir hópar fóru í ratleik í kringum skólahverfið og einnig var dansfjör fyrir alla hópa í íþróttasalnum.
Að lokum var öllum hópum boðið í dansfjör í íþróttasal þar sem við fögnuðum góðu starfi þessa síðustu daga.
Við óskum svo ykkur öllum gleðilegra páskahátíðar.
kveðja
Starfsfólk Vallaskóla