Svíar í heimsókn

Í vikunni var hópur sænsks skólafólks, frá borginni Gävle, í heimsókn í Árborg. Þetta voru sérkennarar, náms- og starfsráðgjafar, skólahjúkrunarfræðingar, tómstundafulltrúar o.fl. sem voru að kynna sér hvernig hlutunum er háttað hér á landi þegar kemur að utanumhaldi um nemendur í skólum og tómstundum.

Hópurinn kom víða við og voru þau góðan part úr degi í Vallaskóla. Það var ekki að sjá og heyra annað en allir væru mjög ánægðir með heimsóknina. Þau hrósuðu íþróttaaðstöðunni í bæjarfélaginu í hástert, Lindexhöllin, íþróttahúsin o.s.frv. Þau áttu ekki orð yfir því góða starfi sem hér er unnið þegar kemur að skóla- og tómstundastarfi.

Þau höfðu einnig orð á því að nemendur væru kurteisir, hjálpsamir og vinalegir. Þau eru sannfærð um að allt þetta góða sem þau urðu vitni að sé afleiðing þess að börn og unglingar séu sett í forgang í samfélaginu.

Þau þakka kærlega fyrir sig og halda reynslunni ríkari heim á leið á laugardaginn.

– Júlíana Gústafsdóttir Eriksson –