Stóra upplestrakeppnin í Vallaskóla

Fimmtudaginn 5. mars fór fram upplestrarkeppni 7. árgangs í Vallaskóla. Þar spreyttu nemendur sig á textum og ljóðum og í kjölfarið var lið skólans valið, lið sem mun keppa fyrir hönd skólans á Stóru upplestrarkeppninni sem fram fer í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri þann 19. mars næstkomandi. Liðið sem var valið skipa þau Christel Dís Grímsdóttir, Tómas Birgir Frímannsson og Kári Vilberg Jónsson, varamaður er Maídís María Birkisdóttir. Til hamingju snillingar í Vallaskóla og þakkir til allra sem hafa komið að undirbúningi!