Stöður leiklistarkennara (60% og 100%) fyrir skólaárið 2020-2021

Um er að ræða tvær stöður kennara í leiklist, önnur 60% og hin 100%. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum með mikla hæfni í mannlegum samskiptum, góða íslenskukunnáttu og brennandi áhuga á grunnskólastarfi. Reynsla af teymisvinnu er mikilvægur eiginleiki.

Í Vallaskóla eru um 640 nemendur í 1.-10. bekk og yfir 100 starfsmenn, sjá www.vallaskoli.is.

Nánari upplýsingar veitir Guðbjartur Ólason skólastjóri (gudbjartur@vallaskoli.is). Sækja skal um starfið á ráðningarvef Árborgar starf.arborg.is .

Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2020 og ráðið verður í starfið frá og með 1. ágúst 2020. Starfið henta jafnt körlum sem konum. Launakjör fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa um10 þúsund íbúar, þar af um 2000 börn í fimm leikskólum og þremur grunnskólum. Í sveitarfélaginu er unnið að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Lögð er áhersla á faglega forystu í anda lærdómssamfélagsins, snemmtæka íhlutun, samstarf skóla og stofnana um umbótastarf og þróun úrræða fyrir börn. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið, fjölskyldusvið og Skólaþjónustu Árborgar má finna á www.arborg.is.