Stöðu- og framvinduprófið Matsferill

Í mars verða stöðu- og framvindupróf lögð fyrir í skólum landsins. Vallaskóli er þar ekki undan skilinn. Forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu skrifaði ágætis grein um þessi próf í Vísi. Þar segir hún meðal annars: “Með því að fá skýrari sýn á hvernig börnunum okkar miðar áfram, getum við betur mætt þeim þar sem þau eru stödd hverju sinni. Það er dýrmætt verkefni okkar allra, foreldra, kennara og okkar hjá Miðstöðinni, að tryggja að hvert einasta barn fái raunverulegt tækifæri til að blómstra. Matsferill er eitt af okkar mikilvægu skrefum í þá átt„.

Hvetjum við fólk til að kynna sér greinina. Hana er hægt að lesa hér.

Nánari upplýsingar um Matsferil má lesa hér.