Skólahjúkrun

 

Heilsuvernd skólabarna í Vallaskóla er á vegum Heilsugæslunnar á Selfossi.

Skólahjúkrunarfræðingur er Olga Kristín Pétursdóttir

netfang skólahjúkrunarfræðings er: vallaskoli.selfoss@hsu.is

og sími 480 5800

 

Viðverutími er eftirfarandi:

Mánudagur: 8:00 - 16:00

Þriðjudagur: 8:00 - 16:00

Miðvikudagur: 8:00 - 16:00

Fimmtudagur 8:00 - 16:00

Föstudagur/annan hvern: 8:00 - 12:00

Viðtalstímar eftir samkomulagi.

Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. 

Markmiðið er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Þjónusta heilsuverndar skólabarna er skráð í rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar. 

Helstu áherslur í heilsuvernd skólabarna eru forvarnir, heilbrigðisfræðsla, skimanir og bólusetningar. Unnið er samkvæmt leiðbeiningum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu um heilsuvernd grunnskólabarna. Frekari upplýsingar um heilsuvernd skólabarna má finna á Heilsuvera.is undir leitarorði "heilsuvernd grunnskólabarna,,

Veikindi og slys 

Ef óhapp eða slys verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæsluna eða slysadeild skulu forsjáraðilar fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í þá á skólatíma barnsins. Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af heilsuvernd skólabarna. 

Langveik börn 

Mikilvægt er að skólahjúkrunarfræðingur viti af börnum sem eru með fötlun eða langvinnan og/eða alvarlegan sjúkdóm, s.s. sykursýki, ofnæmi, flogaveiki, blæðingarsjúkdóma eða aðra alvarlega sjúkdóma. Hlutverk skólahjúkrunarfræðingsins er að skapa þessum börnum viðeigandi aðstæður og umönnun í skólanum í samvinnu við foreldra og starfsfólk skólans. 

Lyfjagjafir

Samkvæmt tilmælum landlæknis um lyfjagjafir í grunnskólum eru sérstakar vinnureglur varðandi lyfjagjafir til nemenda á skólatíma. Mikilvægt er að forsjáraðilar barna sem þurfa að taka lyf á skólatíma hafi samband við skólahjúkrunarfræðing.

Gagnlegir tenglar

Heilsuvera 

Embætti landlæknis

Saman hópurinn