Úrvinnslusóttkví aflétt! Skólastarfið fer í eðlilegan farveg á morgun, miðvikudaginn 21. apríl
Komið þið sæl, kæru fjölskyldur nemenda í Vallaskóla (bréfið var sent í tölvupósti á Mentor). Okkur voru í þessu að berast þær ánægjulegu fréttir frá smitrakningarteyminu að sýni beggja nemenda í öðrum og fjórða bekk reyndust neikvæð. Er því úrvinnslusóttkví í þessum bekkjum hér með aflétt. Hefðbundið skólastarf í Vallaskóla hefst á morgun, miðvikudaginn 21. …
Nýjustu fréttir af úrvinnslusóttkví í lok dags
Komiði sæl kæru fjölskyldur nemenda í Vallaskóla (bréfið var sent í tölvupósti á Mentor). Þegar þetta er ritað höfum við ekki enn fengið staðfestingu á því að þeir nemendur sem grunur lék á að væru smitaðir af Covid-19 í Vallaskóla hafi greinst jákvæðir. Því er ljóst að einhverjar raskanir verða á hefðbundu skólastarfi á morgun, …
Úrvinnslusóttkví, 2. og 4. bekkur
Kæru fjölskyldur barna í 2. og 4. bekk Vallaskóla. Okkur þykir leitt að tilkynna að grunur er um COVID-19 smit hjá tveimur börnum, annars vegar í 2. bekk og hins vegar í 4. bekk skólans. Athugið að enn er ekki um staðfest smit að ræða.
Íslandsmót barnaskólasveita og skákæfingar í Vallaskóla
Vallaskóli sendi sveit til keppni á Íslandsmót barnaskólasveita sem fór fram í Reykjavík 27. mars.