Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Skjálftinn

By Sigurður Jesson | 27. nóvember 2025

Kæru foreldrar og forsjáraðilar Okkur unga fólkinu þætti vænt um að þið fylgduð okkur á instagram SKJÁLFTINN:https://www.instagram.com/skjalftinn/ Í instagrami Skjálftans sýnum við frá ferlinu við að samsköpun listaverks sem sýnt verður á listahátíð Skjálftans 29.nóveber n.k. í Þorlákshöfn. Áfram listamenning ungs fólks á Suðurlandi!  Fyrir hönd ungmennanna SKJÁLFTINN

Bebras-áskorunin

By Sigurður Jesson | 26. nóvember 2025

Bebras-áskorunin er skemmtileg og fræðandi rök- og tölvuþrautakeppni fyrir nemendur á öllum aldri Nemendur í 5. árgangi Vallaskóla tóku þátt í Bebras áskoruninni í nóvember og náði 28% hópsins gullverðlaunum sem er afar vel gert, en í heildina ná 10% nemenda í hverjum aldurshópi gulli. Bebras áskorunin er rafræn glíma við fjölbreytt verkefni sem  þjálfar rökhugsun, sköpun og lausnamiðaða nálgun […]

Skertur dagur

By Sigurður Jesson | 26. nóvember 2025

Kæru foreldrar og forráðamenn.    Við minnum á að í dag er skertur dagur í Vallaskóla, kennslu lýkur kl. 10:30. Sjá nánar hérna:   https://vallaskoli.is/skertur-dagur-26-november/

Photo by The Climate Reality Project on Unsplash

Skertur dagur 26. nóvember

By Sigurður Jesson | 24. nóvember 2025

Kæru foreldrar/forráðamenn nemenda við Vallaskóla.  Miðvikudaginn 26. nóvember 2025 er skertur dagur, stöðufundir árganga skv. skóladagatali. Starfsmenn Vallaskóla forgangsraða deginum í þágu faglegra starfa. Kennarar nýta daginn í samvinnu, bæði árgangateyma sem og faggreinateyma. Hugað verður að stöðu námsmats, tengingu þess við kennslu, kennsluáætlanir, einstaklingsnámskrár og hæfniviðmið.  Við hættum kennslu kl. 10:30 og nemendur verða sendir heim. Foreldrar […]

Mini Kveiktu

By Sigurður Jesson | 24. nóvember 2025

Mini Kveiktu var haldin með miklum glæsibrag t í síðustu viku. Lið 6. MBG og 7 . KHM kepptu til úrslita. Keppnin var æsispennandi en lið 6. MBG stóð upp sem sigurvegari. Þessi keppni er góð æfing fyrir Kveiktu spurningarkeppnin sem nemendur unglingadeildar taka þátt í. Til hamingju 6. MBG!