Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Úrslitakeppni Stóru upplestrarkeppninnar

By Sigurður Jesson | 28. mars 2025

Í gær fór fram úrslitakeppni Stóru upplestrarkeppninnar milli skólanna í Sveitarfélaginu Árborg. Var hún haldin í hátíðarsal Stekkjaskóla við mikla viðhöfn. Vallaskóli átti þar fjóra fulltrúa. Þeir stóðu sig allir með prýði. Reyndar svo vel að fulltrúar okkar lentu í þremur efstu sætunum. Arnar Bent Brynjarsson hampaði 1. sætinu, Elísabet Kristel Þorsteinsdóttir varð í 2. […]

Stóra upplestrarkeppnin

By Sigurður Jesson | 26. mars 2025

Á dögunum fór fram innanhússkeppni Stóru upplestrarkeppninnar hér í Vallaskóla. Keppnin er haldin fyrir nemendur 7. árgangs. Allur árgangurinn hefur æft stíft undanfaran mánuði undir handleiðslu Lindu Daggar Sveinsdóttur kennara við skólann. Áður en innanhúss keppnin fór fram, fór fram undankeppni í hverjum bekk árgangsins. Þar voru valdir fulltrúar bekkjanna í innanhússkeppnina. Upplesararnir lásu fyrir […]

Skertur dagur

By Sigurður Jesson | 17. mars 2025

Miðvikudaginn 19. mars. Skóla lýkur hjá nemendum klukkan 12. Kennarar sveitarfélagsins hittast í Stekkjaskóla og sitja námskeið um Vinnustaðamenningu og vellíðan kennara. Frístund verður opin fyrir nemendur 1.-4. árgangs.

Kennaranemar frá Kanada

By Sigurður Jesson | 14. mars 2025

Við erum svo heppin að fá til okkar kennaranema alla leið frá Nova Scotia í Kanada. Þeir munu vera í áhorfi og kennslu í 1., 2., og 7. árgangi fram að páskum og ekki er að sjá annað en að fyrstu dagarnir fara vel af stað. Enginn vafi er á að starfsfólk og nemendur Vallaskóla […]

Heimsókn kennara frá Reonion eyju

By Sigurður Jesson | 10. mars 2025

Fimmtudaginn síðast liðin heimsóttu okkur tveir kennarar frá Reunion (Réunion) eyju í Indlandshafi. Voru þeir að kynna sér skólastarf hér í Vallaskóla og ætluðu svo að fara víðar um Suðurland. Sem þakklætisvott fyrir gestrisnina færðu þeir okkur hunang, sultu, krydd og sykur sem framleidd eru Reunion. Hunangið átti meira að segja uppruna sinn í eigin […]