Síðastliðinn þriðjudag 10. febrúar fóru nemendur 10. bekkja Vallaskóla á þjónustuskrifstofu stéttarfélagsins Bárunnar. Þar fengu þau kynningu á þjónustu stéttarfélaganna, fengu gagnlegar upplýsingar um sögu verkalýðsbaráttunnar og réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Áður en kynningin hófst var boðið upp á pizzur. Hjalti Tómasson sá um kynninguna og svaraði fjölmörgum spurningum sem tengjast ungu fólki á vinnumarkaði.