Foreldrafundur

Starfsdagur og foreldradagur

Mánudaginn 2. nóvember er starfsdagur samkvæmt skóladagatali. Þriðjudaginn 3. nóvember boðum við svo til nemenda- og foreldraviðtala en viðtölin eru nemendastýrð eins og síðustu ár. Forráðamenn panta viðtalstíma í Mentor en opnað hefur verið fyrir skráningar.

Foreldraviðtöl fara fram í skólanum nema í undantekningartilvikum, þ.e. að viðtöl séu með rafrænum hætti eða símleiðis. Umsjónarkennarar halda utan um það. Þeir foreldrar sem telja sig þurfa túlkaþjónustu verða beðnir um að koma þeirri ósk til viðkomandi umsjónarkennara.