Starfsdagur 9. maí og skertur dagur 12. maí

Föstudaginn 9. maí er starfsdagur í Vallaskóla og fellur því kennsla niður þann daginn. Mánudaginn 12. maí er skertur dagur vegna stöðufunda árganga og lýkur kennslu þann daginn kl. 10:30. Það þýðir að kl. 10:30 lýkur kennslu og nemendur í 5.-10. árgangi sendir heim. Foreldrar eru því beðnir um að gera ráðstafanir vegna þessa.

Boðið verður upp á gæslu fyrir nemendur í 1.- 4. árgangi. Sú gæsla er frá kl. 10:30 þar til frístundastarfið hefst kl. 13:00. Hádegisverður verður fyrir þá nemendur kl. 11:30. Ef foreldrar vilja sækja barn sitt eða senda heim kl. 10:30 er mikilvægt að láta viðkomandi umsjónarkennara vita.