Skreytingadagur og rauður dagur var í dag í Vallaskóla. Nemendur dunduðu sér við margskonar föndurverkefni og hlustuðu á jólatónlist. Stofurnar voru svo fallega skreyttar og jafnvel rötuðu einhverjar skreytingar fram á gang.
Boðið var uppá kakó og piparkökur fyrir þá sem vildu.
Dásamlegur jólaandi var yfir öllu og notalegheitin í fyrirrúmi