Fréttasafn
Fréttir frá Vallaskóla
Skólasetning
Skólastarf í Vallaskóla hófst með formlegum hætti í dag. Að vanda bauð skólastjóri nemendur velkomna til starfa og setti svo skóla formlega með því að hringja hann inn með gamalli skólabjöllu.
Ytra mat grunnskóla
Á vordögum var starf skólans metið. Nú hefur Násmatsstofnun skilað af sér matsskýrslu. Áhugasamir geta kynnt sér hana með því að smella á tengilinn Ytra mat grunnskóla í Handraðanum hér vinstra megin á síðunni.
Skólasetning föstudaginn 22. ágúst
Skólasetning fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla föstudaginn 22. ágúst. Nemendur í 2.−5. bekk, f. 2004−2007, mæti kl. 10:00. Nemendur í 6.−10. bekk, f. 1999−2003, mæti kl. 11:00. Nemendur í 1. bekk (f. 2008) og forráðamenn þeirra eru boðaðir sérstaklega […]
