Fréttasafn

Fréttir frá Vallaskóla

Skólaslit og útskrift

4. júní 2025

Nú eru Vordagar hafnir í Vallaskóla. Árgangar hafa skipulagt allskyns skemmtilega hluti þessa dagana en veðrið hefur aðeins verið að stríða okkur í skipulaginu.  Fimmtudaginn 5. júní höldum við vorhátíð og  grillum pylsur frá kl. 11:30. Skólabíll gengur samkvæmt áætlun. […]

Vallaleikarnir

3. júní 2025

Síðustu dagana fyrir skólaslit er kennslan brotin upp hjá okkur. Í unglingadeild og 7. árgangi eru Vallaleikar haldnir og ná þeir yfir þrjá daga. Nemendur að leysa ýmsar þrautir og eru í leikjum. Fram undan er svo skotboltamót sem endar […]

Útskriftarferð 10. árgangs

2. júní 2025

Í síðustu viku fór 10. árgangur í útskriftarferð sem þau hafa safnað fyrir í allan vetur. Um var að ræða tveggja daga ferð og gist var í félagsheimili Hrunamanna á Flúðum. Ferðin heppnaðist í alla staði vel. Það sem krakkarnir […]

Læsi fyrir lífið – Sprotasjóður

30. maí 2025

Á vordögum fékk Vallaskóli úthlutað styrk úr Sprotasjóði að upphæð 2.000.000,- kr. en Sprotasjóður er sameiginlegur sjóður fyrir leik-, grunn og framhaldsskóla sem styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá. Sótt var um […]

Þrívíddarlist

28. maí 2025

Nokkrir nemendur á miðstigi hafa verið að vinna þrívíddar listaverk í vali hönnun og smíði. Hér gefur að líta nokkur af verkum þeirra.

Hjóladagur hjá 2. árgangi

27. maí 2025

Í síðustu viku var hjóladagur í 2. árgangi og mættu nemendur með reiðskjóta af ýmsum stærðum og gerðum. Þó veður hafi verið vott í upphafi rættist fljótt úr og aðstæður til hjólreiða urðu hinar ágætustu. Lögreglan sá um að setja […]

Gullin í grendinni

26. maí 2025

Í rúman áratug hafa tveir yngstu árgangar Vallaskóla verið í samstarfsverkefni með tveimur elstu árgöngum Álfheima sem ber heitið Gullin í grendinni. Markmið verkefnisins er að auka samvinnu og samskipti skólastiganna auk þess að ýta undir útikennslu. 1. árgangur hittir […]

Svíar í heimsókn

22. maí 2025

Í vikunni var hópur sænsks skólafólks, frá borginni Gävle, í heimsókn í Árborg. Þetta voru sérkennarar, náms- og starfsráðgjafar, skólahjúkrunarfræðingar, tómstundafulltrúar o.fl. sem voru að kynna sér hvernig hlutunum er háttað hér á landi þegar kemur að utanumhaldi um nemendur […]

Glæpasögur

21. maí 2025

Eitt að verkefnum sem nemendur í 9. bekk hafa verið að vinna á vor önninni er að lesa glæpasögur. Nemendur hafa svo unnið verkefni út frá lestri sínum. Eitt af þessum verkefnum leit dagsins ljós á vegg í unglingadeild. Myndirnar […]

Vímuefnafræðslan VELDU fyrir foreldra

20. maí 2025

Fyrir foreldra/forráðamenn ungmenna sem hafa fengið vímuefnafræðsluna VELDU frá Heilsulausnum. Einnig mælum við með því að starfsfólk sem sinnir ungmennunum fylgist með. Markmið: Fræða foreldra og starfsfólk um það sem ungmennin þeirra fengu fræðslu um. Hvetja foreldra til að taka samtalið […]

Listin að vera leiðinlega foreldrið

19. maí 2025

Góðviðri

19. maí 2025

Væntanlega hefur ekki farið fram hjá neinum að mikið góðviðri hefur glatt jafnt unga sem gamla. Nemendur okkar hafa nýtt veðrið vel og notið sólargeislanna.