Fréttasafn
Fréttir frá Vallaskóla
Vetrarleyfi
Á morgun fimmtudag og á föstudag er vetrarleyfi í Vallaskóla. Mæting samkvæmt stundaskrá á nýjan leik mánudaginn 2. mars.
Vöflusala og kökubasar hjá 10. bekk
Á foreldradeginum munu nemendur 10. bekkjar bjóða upp á vöflur á viðráðanlegu verði í matsal og miðrými skólans. Vöflusalan er til að afla fjár til útskriftaferðar þeirra í vor. Eins verður hægt að fjárfesta í hnallþórum (kökum) til að styrkja […]
Síðbúnar Öskudagsmyndir
Hér gefur að líta nokkrar myndir frá öskudeginum. Dálítið í seinna lagi en ekki verri fyrir það.
Foreldradagur
Á morgun, miðvikduaginn 25. febrúar, er foreldradagur í Vallaskóla. Þá mæta nemendur með foreldrum sínum í skólann og eiga stuttan fund með umsjónarkennara, þar sem námsframvinda og annað tengt skólastarfinu er umræðuefni. Minnum gesti á að skoða sýningu á […]
Heldriborgarar í heimsókn
Í síðustu viku heimsóttu nokkrir heldriborgarar nemendur í tölvuvali. Nemendurnir aðstoðuð þá við að koma sér inn heim spjaldtölvunnar. Vinsælustu öppin þessa stund sem heimsóknin stóð yfir voru Facebook og Snapchat. Mikil ánægja var með þessa heimsókn bæði hjá ungum […]
Öskudagur
Á öskudaginn er skóladagur og mega nemendur koma í búningum í skólann, en eru vinsamlegast beðnir um að skilja öll vopn og aðra fylgihluti eftir heima. Kennslu í 5. – 10. bekk verður hætt kl. 13:00 til jafns á […]
