Fjölmenningardeild

Sagan

ÍSAT nemendum hefur verið kennt í fjölda ára af Önnu Lindu deildarstjóra Fjölmenningardeildar. Fyrstu árin sá hún ein um kennslun. Kennurum deildarinnar hefur fjölgað jafnt og þétt í takt við aukinn fjölda nemenda.
Kennt hefur verið á ýmsum stöðum. Fyrst í Sandvíkurskólanum og svo víðsvegar hér í Vallaskóla. Nemendur voru fáir í fyrstu en hefur fjölgað hratt. Voru fljótlega komnir upp í 50 og í dag er njóta á sjötta tug þjónust deildarinnar.

Fyrstu ár ÍSAT kennslunnar var kennt í litlu rými og þar stunduðu nám háttí 50 nemendur úr mörgum árgöngum en ekki þó öll á sama tíma.

Anna Linda Sigurðardóttir er deildarstjóri Fjölmenningardeildar en sér jafnframt um kennslu ÍSAT-nemenda ásamt öflugum kennurum deildarinnar.

Kennslan

Áherslurnar eru alltaf að efla orðaforða og sjálfstæði nemenda. Hjálpa þeim að fóta sig í íslensku skólasamfélagi og aðlaga þau breyttum aðstæðum.

Við notum stöðumat í íslensku og stærðfræði ásamt því að taka ítarleg viðtöl við nemendur og foreldra til að kortleggja nemendur m.t.t. þess sem framundan er...

Kennt er samkvæt hæfniviðmiðum Aðalnámskrár grunnskóla. Sjá einnig Aðalnámskrá grunnskóla, íslenska sem annað tungumál.

 

Vefur fjölmenningardeildar: https://sites.google.com/g.vallaskoli.is/fjolmenningardeild/heima?pli=1

 

Netfang deildarstjóra: annal[hjá]vallaskoli.is

Sími skólans: 480 5800