Skólasetning skólaárið 2023-2024

Skólasetning fer fram föstudaginn 25. ágúst 2023 í íþróttahúsi Vallaskóla á Sólvöllum. Eftir stutta samkomu í íþróttahúsinu munu nemendur hitta umsjónarkennara sína.

Við vekjum athygli á að skólasetningin fer fram tveimur dögum síðar í Vallaskóla en í öðrum grunnskólum Árborgar. Það er vegna verklegra framkvæmda sem fylgja á tilfæringum skólastarfsins á Sólvöllum (nánar í tölvupósti skólastjóra til foreldra og forráðamanna).

Mæting á skólasetningu er sem hér segir:

Kl. 09:00  2. – 6. bekkur, f. 2016 – 2012

Kl. 10:00  7. – 10. bekkur, f. 2011 – 2008

Nemendur og forráðamenn nemenda í 1. árgangi (f. 2017) verða boðaðir sérstaklega til viðtals með umsjónarkennara.