Skólasetning skólaárið 2018-2019
Grunnskólar Sveitarfélagsins Árborgar verða settir miðvikudaginn 22. ágúst 2018.
Meðfylgjandi eru upplýsingar um tímasetningar hvers skóla.
Vallaskóli
Skólasetning fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla.
Kl. 10:00 Nemendur í 2.−5. bekk, f. 2008−2011.
Kl. 11:00 Nemendur í 6.−10. bekk, f. 2003−2007.
Gert er ráð fyrir stuttri samkomu í íþróttasal en síðan munu nemendur og foreldrar hitta umsjónarkennara.
Nemendur í 1. bekk (f. 2012) og forráðamenn þeirra eru boðaðir sérstaklega í viðtöl eins og þegar hefur verið tilkynnt.
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Kl. 09:00 Skólasetning 1.–6. bekkjar, f. 2007−2012, á Stokkseyri.
Kl. 11:00 Skólasetning 7.–10. bekkjar, f. 2003‒2006, á Eyrarbakka.
Skólabíllinn fer frá skólanum á Eyrarbakka kl. 8:45 og frá skólanum á Stokkseyri kl. 10:45 fyrir þá sem þurfa.
Sunnulækjarskóli
Kl. 09:00 Nemendur í 1.−4. bekk, f. 2009 – 2012.
Kl. 10:00 Nemendur í 5. – 7. bekk, f. 2006 – 2008.
Kl. 11:00 Nemendur í 8.−10. bekk, f. 2003–2005.
Gert er ráð fyrir stuttri samkomu í Fjallasal en síðan munu nemendur og foreldrar hitta umsjónarkennara.
Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum þennan fyrsta skóladag.
Skólastjórnendur Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri, Vallaskóla og Sunnulækjarskóla.