Vegna appelsínugulrar veðurspár fyrir morgundaginn, miðvikudaginn 5. febrúar, má búast við röskunum á akstri GTS.
Sveitaakstur mun fara frá skólum kl 13:00, miðað við núverandi veðurspá verður ekki önnur ferð eftir það.
Að öllu óbreyttu mun akstur ferðaþjónustu fatlaðra innanbæjar á Selfossi halda sér. ATH miðað við núverandi spá er ekki farið út fyrir Selfoss eftir kl 13:00
Spáin fyrir fimmtudag 6. febrúar er mjög slæm. Við munum að sjálfsögðu fylgjast með og breyta planinu ef þörf er á.
Látið okkur endilega vita ef gera þarf einhverjar breytingar á akstursplani.