Grunnskólar Árborgar vinna strax frá upphafi skólaársins eftir nýjum viðmiðum um skólasókn sem gefin hafa verið út af ráðuneyti menntamála.
Hluta af texta um þetta mál á vef Stjórnarráðsins má sjá hér fyrir neðan.
Mennta- og barnamálaráðuneytið undirbýr útgáfu landsviðmiða um skólasókn grunnskólanemenda fyrir skólaárið 2026–2027. Markmiðið er að skrá, bregðast við og koma í veg fyrir skólaforðun barna í grunnskólum á samræmdan hátt á landsvísu.
Skólasókn barna skiptir máli — ekki aðeins fyrir nám, heldur líka fyrir tengsl, vellíðan og þátttöku í skólasamfélaginu. Þegar barn missir úr skóla getur það verið vísbending um að skoða þurfi stöðu þess betur og bregðast við áður en vandinn verður stærri.
Texti tekin af vef Stjórunarráðsins: Samræmd viðmið um skólasókn á næsta skólaári.
Hér er svo greinagerð sem birta var í tengslum við þessi viðmið: Skólasókn grunnskólanemenda, skráning og viðbrögð – greinargerð verkefnahóps mennta- og barnamálaráðuneytisins.

