Öskudagur var haldinn hátíðlegur í Vallaskóla að vanda.
Mikil hefð er fyrir góðri stemningu í Vallaskóla þar sem bæði nemendur og starfsfólk er hvatt til að koma í búningum.
Öskudagur ársins var engin undantekning og var stór meirihluti Vallaskólafjölskyldunnar mættur í búning.
Búningarnir voru frábærir og ótrúlega mikil vinna greinilega lögð í hvern og einn.