Frábært málþing, helgað Olweusaráætluninni á Íslandi, var haldið í dag föstudag, 22. nóvember. Yfir 90 þátttakendur mættu til leiks, þar á meðal tveir fulltrúar Vallaskóla, þeir Jónas Víðir Guðmundsson kennari og Þorvaldur H. Gunnarsson deildarstjóri eldri deildar. Vallaskóli hefur verið með í Olweusaráætluninni allt frá innleiðingu hennar fyrir 10 árum (frá skólaárinu 2002-2003).
Dagskráin var ríkuleg. Erindin voru fróðleg og vönduð. Og þá ekki síður málstofurnar. Eins og Þorlákur Helgason, verkefnastjóri Olweusaráætlunarinnr á Íslandi, segir: ,,Olweusaráætlunin er í góðum höndum!“. Sjá betur á heimasíðunni www.olweus.is .
Vakin er athygli á þvíað viðtöl sem tekin vou upp um morguninn á málþinginu verða flutt í þættinum Sjónmáli á mánudaginn milli 11 og 12 – á Rás 1. Þeir sem missa af því geta örugglega heyrt þetta allt á vef RÚV.
Hér að neðan má sjá dagskrá þingsins:
„Við höfum gengið til góðs“
Opið málþing í Neskirkju og Hagaskóla föstudag 22. nóvember kl. 9-16.
Olweusaráætlunin fagnar áratug á Íslandi. Við viljum líta yfir farinn veg og miðla af reynslu. Málþingið er opið öllum sem áhuga hafa á velferð. Verið öll velkomin.
Málþingsstjóri: Þorlákur H. Helgason, framkvæmdastjóri Olweusaráætlunarinnar á Í slandi
Við opnum klukkan 8.20 með kaffi og spjalli í safnðarheimilinu (gengið inn að vestanverðu).
9:00 Setning og upphitun.
9:10 Ávarp. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra.
Dagskrárkynning.
9:30 Við höfum gengið til góðs. Olweusaráætlunin. Árangur og ávinningur. Niðurstöður eineltisrannsókna 2006-2012.
Reidar Thyholdt, framkvæmdastjóri Olweus International, kynnir (á ensku). Þorlákur H. Helgason, framkvæmdastjóri Olweusaráætlunarinnar á Íslandi.
10:10 „Ég held að lífið væri auðveldara ef maður væri strákur.“ Erfið samskipti og einelti stúlkna.
Ingibjörg Auðunsdóttir, sérfræðingur á miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og
Helga Halldórsdóttir, deildarstjóri og meistaranemi.
10:50 Ávaxtahlé.
11:10 Sáttmáli gegn einelti í heilu sveitarfélagi. Það tekur heilt þorp að ala upp barn. Helga Tryggvadóttir, verkefnastjóri í Grunnskóla Vestmannaeyja.
11:25 Leikir í frímínútum – forvörn gegn einelti Inga Lára Sigurðardóttur, verkefnastjóri í Vinaliðaverkefni, Skagafirði.
11:40 Olweusaráætlunin í Vesturbænum (Rvk.). Verkefnastjórar úr vesturbænum í panel.
12. 00 Olweus undir Jökli. Magnús Þór Jónsson, skólastjóri Grunskóla Snæfellsness.
12:15 Matarhlé.
13:15 Málstofur.
Sjá sér dagskrá.
15:30 Léttar veitingar.
16:30 Kærar þakkir.
Unnið verður í málstofum eftir hádegi þar sem til umræðu verða efni tengd erindum sem flutt voru fyrir hádegi auk nýrra viðfangsefna. Gert er ráð fyrir tveimur lotum eftir hádegi. Skipting gæti breyst í kjölfar vals.
ÞHH