Kæru fjölskyldur nemenda Vallaskóla
Mikilvægar dagsetningar framundan í maímánuði. Þriðjudagurinn 10. maí er skertur dagur. Nánar útskýrt í starfsáætlun skólans https://vallaskoli.is/skolinn/starfsaaetlun/ . Kl. 10:30 verður kennslu hætt og nemendur í 5.-10. árgangi sendir heim. Foreldrar eru því beðnir um að gera ráðstafanir vegna þessa. Boðið verður upp á gæslu fyrir 1.-4. árgangi frá 10.30 þar til frístundastarfið hefst um kl. 13:00. Hádegisverður á sínum stað. 1. og 2. árgangur verður á efri hæð Bifrastar en 3. og 4. árgangur í kjallaranum á Sólvöllum. Ef foreldrar vilja sækja barn sitt eða senda heim kl. 10.30 þurfa þeir að láta viðkomandi umsjónarkennara vita. . Miðvikudaginn 11. maí: Skólaljósmyndataka í 1., 5. og 10. árgangi. Sjá nánar upplýsingar frá umsjónarkennurum. . Breyting á skóladagatali vegna þemadaga: Allir þemadagar verða í júní, dagana 1.-7. júní. Sjá nánar upplýsingar frá umsjónarkennurum. . Fimmtudagurinn 26. maí: Uppstigningardagur. FRÍ. . Mánudagurinn 6. júní: Annar í hvítasunnu. FRÍ. . Þriðjudagurinn 7. júní: Hjóladagur. Nánar síðar. . Miðvikudagurinn 8. júní: Vorhátíðardagur. Nánar síðar. . Fimmtudagurinn 9. júní: Skólaslit og sumarleyfi nemenda hefst. Varðandi skólaferðir í árgöngum: Sjá nánar upplýsingar frá umsjónarkennurum. Hafið það sem allra best. Með kærri kveðju. Starfsfólk Vallaskóla.