Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í Árborg

Fimmtudaginn 19. mars síðastliðinn fór fram lokakeppni Stóru upplestrakeppninnar í Árborg. Keppnin var haldin á Stokkseyri í skólahúsnæði Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri og tóku alls 11 nemendur þátt frá öllum grunnskólum sveitarfélagsins.

Fyrir hönd Vallaskóla kepptu þau Christel Dís Grímsdóttir, Kári Vigfússon og Tómas Birgir Frímannsson, sem stóðu sig með mikilli prýði. Óhætt er að segja að við í Vallaskóla erum afar stolt af frammistöðu þeirra, enda sýndu þau öll öryggi og fagmennsku í upplestri sínum.
Gestir keppninnar höfðu orð á því að keppnin í ár hefði verið sérstaklega jöfn og erfitt að greina á milli keppenda. Að lokum fór svo að Jón Heiðar í 7. bekk Sunnulækjarskóla hreppti fyrsta sætið, Katla Margrét úr Stekkjaskóla varð í öðru sæti og Vigdís Birta, einnig úr Stekkjaskóla, lenti í þriðja sæti.

Nemendur hafa undirbúið sig af kostgæfni frá Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember og æft markvisst með umsjónarkennurum sínum, þeim Kristrúnu Helgu og Lilju Ósk. Það hafa börnin jafnframt notið stuðnings frá Írisi Dröfn Kristjánsdóttur, kennara. Er öllum þessum aðilum færðar kærar þakkir fyrir sitt framlag.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á hátíðinni.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Árborgar.

Sigurvegari keppninnar í ár var Jón Heiðar Grétarsson úr Sunnulækjarskóla, í öðru sæti var Katla Margrét Ægisdóttir úr Stekkjaskóla og í þriðja sæti var Vigdís Birta Veigarsdóttir einnig úr Stekkjaskóla. Sigurvegararnir fengu að launum glæsilegar bókagjafir sem Bragi Bjarnason bæjarstjóri afhenti.