Litlu jólin fyrir nemendur í 1. – 5. bekk verða miðvikudaginn 20. desember kl: 10:00 í íþróttasal Vallaskóla. Þennan dag mæta börnin einungis á skemmtunina og við hvetjum foreldra og forráðamenn til að mæta með sínu barni. Eins og áður verða nemendur 6. – 10. bekk með sína jólasamveru þann 19. desember.
Skólahald Vallaskóla hefst svo aftur að nýju miðvikudaginn 3. janúar 2018 og mæta nemendur þá samkvæmt stundaskrá. Opið er á skólavistun þann 2. janúar fyrir nemendur sem eru skráðir þann dag.
Starfsfólk Vallaskóla þakkar fyrir samstarfið á árinu sem er að líða og óskar öllum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Dagskrá Litlu jólanna f. 1. – 5. bekk 20. desember kl: 10:00
· Nemendur úr 1. bekk syngja lagið „Bráðum koma blessuð jólin“.
· Nemendur úr 2. bekk syngja lagið „Skín í rauðar skotthúfur“.
· Nemendur úr 5. bekk sýna helgileik.
· Nemendur úr 3. bekk syngja saman lagið „Dansaðu vindur“.
· Nemendur í 4. bekk ætla að fara með jólasveinavísur Jóhannesar úr Kötlum og syngja lagið „Jólakötturinn“.
· Jólasveinahljómsveit úr tónlistarskóla Árnesinga ásamt Jóhanni Stefánssyni spila og allir dansa í kringum jólatréð. Von er á góðum gestum.
· Hljómsveit hættir að spila um 11:40 og skemmtun lýkur.