Í byrjun mars var Litli upplesturinn í 4. árgangi.
Nemendur æfðu sig vel bæði heima og í skólanum að lesa upp texta. Upplesturinn gekk mjög vel enda voru nemendur áhugasamir og duglegir að æfa sig.
Tónlistaratriði frá nemendum í árganginum vöktu einnig lukku og loksins var hægt að bjóða áhorfendum í skólann sem var einkar ánægjulegt.
Glæsilegt hjá þessum flottu krökkum.