Nú er ljóst hverjir verða fulltrúar Vallaskóla í Spurningakeppni grunnskólanna sem fer fram innan tíðar. Eins og flestir vita þá náði lið Vallaskóla mjög góðum árangri í fyrra. Allir nemendur á unglingastigi áttu möguleika á að taka þátt í forkeppni, þar sem þeir unnu er flest stig fengu. Liðið í ár verður því skipað eftirtöldum nemendum:
AÐALMENN:
Nökkvi 10. HS
Sveinn Ægir 9. RS
Unnar 10. AH
VARAMENN:
Hugrún 10. HS
Ísak Þór 9. RS
Fjölnir Ström 9. RS
Við óskum þessum snillingum alls hins besta og styðjum við bakið á þeim í væntanlegri keppni.