Lestrarupplifun eftir Ævar Þór Benediktsson

Byrjar í dag!

SKÓLASLIT er spennandi og hrollvekjandi lestrarupplifun fyrir áhugasama og forvitna krakka og líka alla hina sem vilja vera með. Lestrarupplifunin er í boði Reykjanesbæjar og er hugafóstur kennsluráðgjafa á Reykjanesi og Ævars Þórs Benediktssonar rithöfundar.

SKÓLASLIT er hrollvekja í þrjátíu og einum hluta. Sagan fjallar um hóp af krökkum sem lokast inni í skólanum sínum á hrekkjavöku. Já, og uppvakninga. Ótrúlega marga uppvakninga.

Á hverjum degi í október mun birtast einn kafli úr sögunni ásamt myndlýsingu Ara Hlyns Guðmundssonar Yates. Sagan er sögð með miðstig grunnskóla í huga en er í raun fyrir alla sem þora.

Ef þú vilt hafa samband við okkur skaltu senda okkur línu á skolaslit@gmail.com