Lausar 3 stöður fyrir skólaárið 2020-2021
- Umsjónarkennarar á miðstigi í 5. og 6. bekk, tvær 100% stöður.
- Umsjónarkennari á unglingastigi, ein 100% staða.
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum með mikla hæfni í mannlegum samskiptum, góða íslenskukunnáttu og brennandi áhuga á grunnskólastarfi. Reynsla af teymisvinnu er mikilvægur eiginleiki.
Í Vallaskóla eru um 640 nemendur í 1.-10. bekk og yfir 100 starfsmenn, sjá www.vallaskoli.is.
Sótt er um stöðuna á vef Sveitarfélagsins Árborgar, http://starf.arborg.is.
Upplýsingar veitir Guðbjartur Ólason skólastjóri (gudbjartur@vallaskoli.is).
Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2020 og ráðið verður í störfin frá og með 1. ágúst 2020. Störfin henta jafnt körlum sem konum. Launakjör fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 9 þúsund íbúar, þar af um 2000 börn í fimm leikskólum og þremur grunnskólum. Í sveitarfélaginu er unnið að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Lögð er áhersla á faglega forystu í anda lærdómssamfélagsins, snemmtæka íhlutun, samstarf skóla og stofnana um umbótastarf og þróun úrræða fyrir börn. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið, fjölskyldusvið og Skólaþjónustu Árborgar má finna á www.arborg.is.