Laus staða umsjónarkennara í 4. árgangi

Komdu að vinna með okkur!

Vallaskóli – Sveitarfélaginu Árborg, laus staða fyrir skólaárið 2021-2022

● Umsjónarkennari í 4. árgangi, 100% staða.

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með mikla hæfni í mannlegum samskiptum, góða skipulagshæfileika, góða íslenskukunnáttu og brennandi áhuga á grunnskólastarfi. Reynsla af teymisvinnu er mikilvægur eiginleiki. Umsækjandi þarf að hafa leyfisbréf grunnskólakennara.

Á skólaárinu 2021-2022 er reiknað með að nemendafjöldi skólans verði 610 nemendur í 1.-10. bekk og starfsmenn um 100 talsins, sjá www.vallaskoli.is.

Sækja skal um starfið á starfavef Árborgar, starf.arborg.is . Nánari upplýsingar veitir Guðbjartur Ólason skólastjóri – gudbjartur@vallaskoli.is eða í síma 480 5800.

Umsóknum fylgi leyfisbréf, yfirlit yfir nám, fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni í starfi. Umsóknarfrestur er til og með 2. september 2021. Starfið hentar jafnt körlum sem konum. Launakjör fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Öllum umsóknum verður svarað.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 10 þúsund íbúar, þar af um 2000 börn í fimm leikskólum og fjórum grunnskólum. Í sveitarfélaginu er unnið að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Lögð er áhersla á faglega forystu í anda lærdómssamfélagsins, snemmtæka íhlutun, samstarf skóla og stofnana um umbótastarf og þróun úrræða fyrir börn. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið, fjölskyldusvið og Skólaþjónustu Árborgar má finna á www.arborg.is.