Læsi fyrir lífið – Sprotasjóður

Á vordögum fékk Vallaskóli úthlutað styrk úr Sprotasjóði að upphæð 2.000.000,- kr. en Sprotasjóður er sameiginlegur sjóður fyrir leik-, grunn og framhaldsskóla sem styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá.
Sótt var um styrk fyrir þróunarverkefnið Læsi fyrir lífið sem miðar að því að efla læsiskennslu á mið- og unglingastigi með fjölbreyttum aðferðum. Unnið er með læsi þvert á námsgreinar og fá kennarar leiðsögn og þjálfun í að kafa dýpra í viðfangsefni með nemendum og nota verkfæri á borð við gangvirkan lestur, hugtakagreiningu, ritunarramma og samræður.
Verkefnastjóri er Hólmfríður Sigrún og er verkefnið unnið í samstarfi við ráðgjafa frá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri sem munu hitta kennarahópinn og stjórnendur reglulega næstu tvo vetur með fræðslu og aðferðir til að efla læsi.