Hið kröftuga nemendafélag Vallaskóla, NEVA, stendur nú fyrir kvöldvöku og páskaeggjabingói á efsta stigi.
Kvöldvakan verður 29. mars og byrjar klukkan 20:00 og lýkur kl. 22.00. Kvöldvakan verður í Austurrýminu og gengið er inn Engjavegsmegin. Einungis ætlað nemendum í 8.-10. bekk. Foreldrar eru vinsamlega beðnir um að sjá til þess að börn sín fari beint heim að skemmtun lokinni.
Dagskrá:
Tískusýning á vegum nemenda frá Fantasíu, Ozone, Intersport og Barón.
Skemmtiatriði. Fram koma: Fríða Hansen, Fjölnir, Sveinn Fannar, Jón Kristján og uppistandarinn Daníel Geir Moritz.
Kynnar verða þeir Elvar Guðberg og Magnús í 9. bekk. Sjoppa á vegum 10. bekkjar.
Miðaverð er kr. 300.
Páskaeggjahappdrætti:
Þann 30. mars (föstudag) verður gulur dagur í Vallaskóla í tilefni páskanna. Og þá verður líka hægt að taka þátt í páskaeggjahappdrætti á efsta stigi. Happdrættismiðinn kostar 200 kr. Dregið verður úr seldum miðum í litlu frímínútunum. Ath. þetta er einungis fyrir nemendur í 8.-10. bekk.
Með páskakveðju frá NEVA.