Nemendur í vali í heimilisfræði enduðu valtímabilið sitt með kökuskreytingu.
Metnaðurinn hjá krökkunum skein í gegn og kökurnar voru margar hverjar ansi frumlegar. Nemendur fengu frjálsar hendur í skreytingunum og útkoman mjög skemmtileg!
Góð stemning var í tímunum þar sem allir lögðu sig fram við að gera kökurnar sínar flottar.