Kahoot spurningakeppni fyrir grunnskóla Árborgar

Fimmtudagskvöldið nk. 3. desember ætlar tvíeykið Már og Leifur að halda Kahoot spurningakeppni fyrir grunnskóla Árborgar.

Keppnin verður tvískipt og verður miðstig (5.- 7. bekkur) kl. 19:30 og elsta stig (8.-10. bekkur) kl. 20:30. Veglegir vinningar í boði fyrir fyrstu þrjú sætin. Keppnin er í boði foreldrafélaga grunnskólanna í Árborg og hvetjum við alla til þess að taka þátt.

Gott er að vera búin að ná í Kahoot appið en það er notað til þess að senda inn svör.

Eins er gott að hafa tvö tæki, eitt fyrir útsendinguna og annað til þess að svara. Útsendingin verður svo í beinni á Youtube en þar verða leikreglur útskýrðar nánar.

Linkur á keppnina: https://www.youtube.com/channel/UCuBTCbxFjFBfXsxoWTKGZ4w

Sótt af www.kahoot.com