Miðvikudaginn 28. september nk. verður Jón Sigfússon frá Rannsókn og greiningu með kynningu á stöðu vímuefnaneyslu ungmenna í Árborg.
Efni fyrirlestrarins er unnið upp úr skýrslum Rannsóknar og Greiningar um vímuefnaneyslu og hagi og líðan ungmenna sem m.a. eru gerðar fyrir Sveitarfélagið Árborg á hverju ári.Efni fyrirlestrarins er unnið upp úr skýrslum Rannsóknar og Greiningar um vímuefnaneyslu og hagi og líðan ungmenna sem m.a. eru gerðar fyrir Sveitarfélagið Árborg á hverju ári.
Fyrirlesturinn fer fram í Fjallasal Sunnulækjarskóla miðvikudaginn 28. september nk. og hefst kl. 20:00.
Foreldrar, forráðamenn og aðrir áhugasamir hvattir til að mæta.
Aðgerðahópur um forvarnir í Sveitarfélaginu Árborg
Heimasíða Rannsóknar og greiningar
Rannsókn og greining hefur staðið að rannsóknum á líðan og högum íslenskra ungmenna frá árinu 1992.
Það borgar sig aldrei að smakka eða prófa
Þess má geta að Jón greindi kennurum Vallaskóla frá niðurstöðum könnunarinnar á starfsmannafundi nú fyrir stuttu.
Það þarf kannski ekki að koma á óvart en í niðurstöðunum er mikil fylgni á milli þess að prófa eða smakka vímugjafa einhvern tíma og hefja svo neyslu á efninu síðar. Þetta þurfum við, sem að uppeldismálum koma, einatt að hafa í huga.