Í rúman áratug hafa tveir yngstu árgangar Vallaskóla verið í samstarfsverkefni með tveimur elstu árgöngum Álfheima sem ber heitið Gullin í grendinni. Markmið verkefnisins er að auka samvinnu og samskipti skólastiganna auk þess að ýta undir útikennslu.
1. árgangur hittir yngri hópinn og 2. árgangur þann elsta 1x í mánuði, þó ekki á sama tíma, í fallega skóginum við Gesthús og er þar ýmislegt brallað. Sem dæmi má nefna voru búnar til fóðurkúlur fyrir fuglana í skóginum og í framhaldi komu krakkarnir af leikskólanum inn í skólann og unnu verkefni með sínum vinaárgangi um fuglana. Á aðventunni er svo jólasamvera úti á Enginu við Álfheima þar sem drukkið er heitt kakó með gómsætum smákökum.
Þessir tímar eru dýrmætir fyrir nemendur og mikil stoð í alla náttúrufræðikennslu því hægt er að fylgjast með hvernig náttúran breytist og aðlagast allan veturinn og hvenær árstíðarskipti eru. Miðvikudaginn 21. maí var svo árleg uppskeruhátíð þar sem allir hóparnir fjórir hittust og áttu saman notalega stund í Gesthúsaskóginum þar sem saman voru komin um það bil 130 nemendur af tveimur skólastigum sem fóru í leiki, sprell og enduðu á ljúfengri grillveislu.
– Íris Árný Magnúsdóttir-